Elín bjóst alls ekki við valinu: „Draumur sem ég er búin að eiga lengi“

Varnarmaðurinn sterki Elín Helena Karlsdóttir er í nýliðinu í landsliðinu í fótbolta. Hún segir að valið hafi komið sér á óvart en Elín varð Íslands- og bikarmeistari með Breiðablik á síðasta ári. Hún er ein þriggja úr Bestu deildinni í hópnum að þessu sinni. Leikurinn hefst klukkan 18:00 í dag á RÚV. „Tilfinningin var mjög góð. Þetta er draumur sem ég er búin að eiga lengi. Það er geggjað að fá kallið.“ Var hún að búast við því að vera valin? spurði Almarr Ormarsson. „Nei, ég get ekki sagt það. Alls ekki. Maður býst kannski aldrei við því. Ég er líka að koma úr meiðslum. Ég er ekki búin að spila leiki síðan í september. Ég er búin að vera í smá vandræðum með það. Þannig ég bjóst alls ekki við því.“ Elín Helena Karlsdóttir er nýliði í íslenska landsliðinu í fótbolta. Hún er lykilkona í vörn Íslandsmeistara Breiðabliks en bjóst ekki við valinu. Hún er spennt fyrir komandi viðureign við heimsmeistara Spánar. „Þær eru búnar að taka mjög vel á móti okkur. Þetta er geggjaður hópur og mjög gott að koma inn í hann.“ Erfiðir leikir Elín ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í fyrstu leikjum sínum. Ísland leikur útileiki á móti Spáni og Englandi, sem eru meðal fremstu þjóða heims. Hún tekur áskoruninni fagnandi. „Það er eiginlega bara mjög skemmtilegt. Það er gaman að geta tekið þátt í alvöru leikjum á móti bestu þjóðum í heimi. Það verður mjög spennandi að geta mátað sig við þær.“ Elín segist ekki með neinar væntingar um spiltíma. Þessi gluggi snýst fyrst og fremst um að koma sér inn í landsliðsumhverfið. „Ég er ekki að búast við neinu komandi inn í hópinn sem nýliði. Það er geggjað að fá að vera hérna og æfa með stelpunum, að komast inn í umhverfið. Þannig ég er alls ekki að búast við neinu.“ Elska að verjast Svo virðist sem einkunnarorð þessa glugga hjá stelpunum séu að elska að verjast. Þær hafa nokkrar haft orð á því og ljóst að traust varnarframmistaða er grunnurinn að árangri gegn Spáni og Englandi. „Ég held að það sem við þurfum að gera er að elska að verjast, að verja markið okkar og vinna svo út frá því.“