Best að geta elt draumana saman

„Það var mjög fyndið þegar ég fór á fyrsta útileikinn minn hjá Brentford á Tottenham-vellinum og settist óvart í vitlaust sæti, hjá Tottenham-stuðningsmönnum. Þegar ég áttaði mig á því og lét þá vita vorum við komin í svo mikinn gír saman að þeir neituðu að hleypa mér í mitt rétta sæti,“ segir lögfræði-meistaraneminn og lífskúnstnerinn Dagbjört Bjarnadóttir. Hún býr í London með kærastanum sínum, fótboltamanninum Hákoni Valdimarssyni.