Bláskel fyrir heim sem bráðvantar próteinfæði

Framleiðsla þörungasvifs innan efnahagslögsögu Íslands er eitt hundrað sinnum stærri en öll frumframleiðsla gróðurs á landi og er langstærsta lífauðlind landsins. Íslendingar geta nýtt þessa auðlind margfalt betur en þeir gera í dag að sögn dr. Júlíusar B. Kristinssonar, sem hyggur á ræktun kynbættra bláskelslirfa.