Stjórnvöld hafa í fyrsta sinn markað sér stefnu til að sporna gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Ætlunin er að koma í veg fyrir að launafólk sé misnotað og samkeppnisstaða skert til að auka fjárhagslegan ávinning, til dæmis með félagslegum undirboðum og fölsun reikninga. Aðgerðaáætlun í 13 liðum er í gildi til ársins 2028. Meðal aðgerða er að efla samstarf Lögreglunnar, Skattsins og Vinnueftirlits ríkisins og tryggja að aðilar vinnumarkaðarins fari allir eftir lögum og kjarasamningum. Samvinna stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins Aðgerðaáætlunin er afrakstur vinnu nefndar sem félags- og húsnæðismálaráðherra skipaði í fyrra. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir brot á vinnumarkaði vera ólíðandi og mikilvægt sé að grípa til öflugra aðgerða gegn skipulagðri brotastarfsemi, mansali og félagslegum undirboðum. „Stefnan og aðgerðaáætlunin marka tímamót og vinnsla þeirra sýnir hversu miklum árangri gott samstarf getur skilað,“ segir Ragnar Þór. Markmiðið er að efla eftirlit, meðal annars með skilvirkri eftirfylgni með ábendingum um brot. Aðgerðaáætlunin, sem er í 13 liðum, er í gildi til ársins 2028. Með henni á að tryggja að dvalarleyfi fyrir þolendur mansals verði styrkt, auka fræðslu um réttindi og skyldur á vinnumarkaði og ráðast í vitundarvakningu um áhrif undirboða og brotastarfsemi á vinnumarkaði. Efla á samstarf Lögreglunnar, Skattsins og Vinnueftirlits ríkisins og tryggja að aðilar vinnumarkaðarins fari allir eftir lögum og kjarasamningum. Samstarfsvettvangur verður kynntur fyrir starfsfólki stofnana, sveitarfélaga og aðilum vinnumarkaðarins og það tryggt að upplýsingum sé miðlað milli aðila. Þá verður geta til að greina fölsuð skilríki efld og skoðaður sá möguleiki að koma á fót miðlægri einingu innan lögreglunnar sem getur sinnt rannsókn á skilríkjum. Við umsóknir um dvalar- og atvinnuleyfi verður komið á fót virkri skimun fyrir mögulegri brotastarfsemi og mansali. Heimilt verður að tryggja hraða afgreiðslu umsókna frá traustum atvinnurekendum. Í því samhengi verður tryggt að þeim sem er veitt atvinnuleyfi fái fræðslu um þau réttindi og skyldur sem tengjast leyfinu og störfum á íslenskum vinnumarkaði.