Matvælastofnun varar fólk við fæðubótarefni sem selt hefur verið í netverslun. Sýklalyfjaónæm salmonella hefur greinst í Rosabella Moringa fæðubótarefni með best fyrir dagsetningar frá03/2027 til 11/2027. Matvælastofnun segir að fólk eigi ekki að neyta fæðubótarefnisins heldur farga því. Fólk getur veikst af neyslu þeirra og koma einkennin þá fram eftir tólf til 72 klukkustundir og geta staðið í fjóra til sjö daga. Þau lýsa sér í niðurgangi, hita og magakrömpum. Ung börn og eldri eru viðkvæmari fyrir. Fæðubótarefnið er selt í netverslunum á borð við eBay, Amazon, Shein og Etsy. Rosabella Moringa fæðubótarefniAðsend