Íslensk fjölskylda í Katar reynir að komast burt

Guðrún Hulda Jónsdóttir Johannessen býr í Doha, höfuðborg Katar. Hún vonar að lofthelgin opni sem fyrst svo hún komist frá landinu og átökunum á svæðinu. Maðurinn hennar er flugmaður, er staddur í Bandaríkjunum og kemst ekki til þeirra. Hún segir ástandið skelfilegt og erfitt að festa svefn vegna þess. Íbúum er ráðlagt að halda sig innandyra nema brýn nauðsyn beri til. „Ef lofthelgin myndi opna þá myndum við náttúrlega reyna að komast heim sem fyrst. Og fara þá bara á fyrstu stöð til Evrópu, ef það er hægt,“ sagði hún í viðtali við Morgunútvarpið á Rás 2 í morgun. Aðrir möguleikar hafa einnig verið skoðaðir, til dæmis að keyra yfir landamærin til Saudi-Arabíu. „En þá þurfum við að fara í gegnum Ríad [höfuðborg Saudi-Arabíu], sem var einmitt verið að sprengja í gær,“ sagði hún, en viðtalið má í heild heyra hér að neðan. Íslendingur sem býr í Doha, höfuðborg Katar, segir ástandið skelfilegt vegna stríðsástands í heimshlutanum. Hún reynir að skipuleggja brottför en það er hægara sagt en gert.