Jón Þorsteinn Oddleifsson.Aðsend Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn forstjóri Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, Danóls, Kjarnavara, Gæðabaksturs og fleiri félaga. Jón Þorsteinn var síðustu ár framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs Ölgerðarinnar. Hann vann áður við viðskiptaþróun hjá Landsbréfum, var fjármálastjóri endurreists Landsbanka eftir hrun og þar áður forstöðumaður fjárstýringar Landsbankans. Nafni Ölgerðarinnar var breytt í Beru fyrir áramót og verður nafn Ölgerðarinnar notað á dótturfélag sem sér um drykkjarvörur. Bera var nafn móður Egils Skallagrímssonar í Egils sögu.