Bjuggu til skyr frá grunni sem var „bara eitthvað súrt“

Leikskólinn Ylur er öflugur þegar kemur að útikennslu og skyrgerðin er eitt af fjölmörgum útiverkefnum krakkanna. Skyrgerðin hófst á heimsókn í fjósið á Skútustöðum til að sjá hvernig mjólkin verður til og fá nokkra lítra til skyrgerðarinnar. Bianca Maria Paregger, starfsmaður í leikskólanum, sér um útikennsluna. Hún segir hugmyndina að skyrgerð hafa kviknað þegar hún kynnti sér sjálf hvernig hún gæti verið sjálfbærari. Hún hafi komist að því að skyrgerð er nokkuð einföld og tilvalin fyrir krakkana. „Þetta skapar tengsl, og tengsl stuðla að virðingu fyrir dýrum og mat,“ segir Bianca. Landinn fylgdist með krökkunum gera skyr. Innslagið er í spilaranum hér fyrir ofan.