Sönnuðu ekki full­yrðingar um lækninga­mátt og fá háa sekt

ST. Import ehf., sem rekur vefverslunina Snjalltæki.store, hefur verið sektað um tvær milljónir króna fyrir fjölda brota á ýmsum lögum um neytendavernd, meðal annars vegna fullyrðinga um meintan lækningamátt ýmissa vara. Vörurnar voru meðal annars sagðar geta komið í veg fyrir hárlos, losað fólk við appelsínuhúð og linað verki.