Er hraðskreiðasti leikmaður Evrópu eftir þennan sprett – Myndband

Lítt þekktur nígerískur leikmaður, Yira Sor, hefur samkvæmt nýjustu mælingum náð mestum hraða allra knattspyrnumanna í Evrópu síðustu tvö ár. Sor, sem leikur með belgíska félaginu Genk, mældist á 37,7 km/klst þegar hann skoraði í 3-0 sigri á Gent um helgina. Með því sló hann fyrra metið, 36,9 km/klst, sem William Osula hafði sett. Lesa meira