Ætlar að þrýsta á innviðaráðuneytið í dýpkunarmálum

Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar ætlar að þrýsta á að stjórnvöld geri viðbragðsáætlun til að bilun í dýpkunarskipi hafi ekki áhrif á opnun Landeyjahafnar. Dýpkun var frestað vegna bilunar í dýpkunarskipinu Álfsnesi. Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar hélt aukafund um dýpkunarmál í dag. Þar sögðust fulltrúar Vegagerðarinnar áætla að lokið yrði við viðgerð á Álfsnesinu í lok næstu viku. „Ef það gengur eftir, þá er það mun bjartara en við áttum von á í gær,“ segir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. Hins vegar sé ekkert viðbragð til staðar til að tryggja að hægt sé að vinna að dýpkun Landeyjahafnar ef bilun verður í skipinu. „Það er það sem við erum að kalla eftir núna,“ segir Íris. „Við getum auðvitað ekki búið við þær aðstæður að það sé ekkert viðbragð og ekkert back-up-plan fyrir dýpkun við höfnina.“ Innviðaráðuneytið og Vegagerðin þurfi að tryggja að viðbragð sé til staðar, til að mynda að annað skip sé til taks ef alvarlegar bilanir verða. „Ástandið er auðvitað ekki gott ef það er ekkert viðbragð í landinu við því að það verði alvarleg bilun í dýpkunarskipi. Við munum þrýsta á ráðuneytið, þingmenn og Vegagerðina að bætt verði úr því.“