Sjálfstæðisflokkurinn birtir lista sinn á Seltjarnarnesi

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi hefur samþykkt framboðslista flokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri er sem fyrr oddviti flokksins. Ein breyting varð á efstu sætum listans frá úrslitum prófkjörs sem fram fór í síðasta mánuði. Svana Helen Björnsdóttir bæjarfulltrúi sagði sig frá framboði þar sem hún hefur verið ráðin forstjóri Reykjalundar. Hún var áður stjórnarformaður. Svana lenti í þriðja sæti í prófkjörinu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í meirihluta bæjarstjórnar og þar áður sveitarstjórnar frá 1962 þegar stjórnmálaflokkar landsins fóru að bjóða fram að staðaldri undir eigin nafni í sveitarfélaginu.