Bæjar­stjórinn púttar eins og engill með illa fengnum pútter

Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, Þór Sigurgeirsson, var sérstakur gestur í golfhlaðvarpinu Seinni níu. Þar var farið yfir víðan völl en Þór er með 22 í forgjöf og liðtækur kylfingur. Ekki síst er það vegna þess að hann er með rándýran pútter í höndum sem hann nappaði úr nytjagámi í Sorpu.