Umfangsmiklar árásir gegn klerkastjórninni

Bandaríkjamenn og Ísraelar hafa hafið nýjar og umfangsmiklar eldflaugaárásir gegn Íran. Sprengingar dynja um höfuðborgina Teheran og staðarmiðlar herma að eldflaugarnar hafi hæft byggingu Sérfræðingaráðsins svonefnda, en ráðið hefur það hlutverk að velja næsta leiðtoga landsins.