Fyrstu formlegu tímamót sveitarstjórnarkosninga þetta árið voru í dag þegar opnað var fyrir söfnun meðmæla með framboðum vítt og breitt um landið. Kosningarnar fara fram 16. maí og utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 17. apríl. Áður en til þess kemur þarf þó að liggja fyrir hvaða listar verða í framboði. Flokkar, félög og önnur framboð þurfa að safna meðmælum með framboði sínu frá kjósendum í viðkomandi sveitarfélagi til að fá að bjóða fram. Fjöldinn sem þarf að safna er misjafn eftir íbúafjölda. Kjósendur geta mælt með framboði í eigin sveitarfélagi. Aðeins er hægt að mæla með einu framboði fyrir kosningar. Fólk getur þó afturkallað meðmæli sín með framboði þar til framboðsfrestur rennur út eða þar til viðkomandi framboð hefur skilað inn framboðsgögnum. Hér er hægt að mæla með framboðum, eða verður öllu heldur, því ekkert framboð er farið að safna undirskriftum. Rúmlega mánuður gefst til að safna meðmælum áður en framboðsfrestur rennur út 10. apríl, föstudaginn eftir páska.