Ísland mætir Svartfjallalandi í undankeppni Evrópumóts kvennalandsliða í handbolta annað kvöld klukkan 18:00 að Ásvöllum í Hafnarfirði. Svartfellingar hafa fjögur stig í riðlinum en Ísland er án stiga. Nokkrir fastamenn úr liði Íslands verða fjarverandi annað kvöld og í dag bættist frekari hausverkur við fyrir Arnar Pétursson landsliðsþjálfara. Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, skytta úr Fram er meidd og þurfti af þeim sökum að draga sig úr landsliðshópnum. Í hennar stað hefur Arnar Pétursson kallað Alexöndru Líf Arnarsdóttur línumann úr Haukum inn í hópinn. Alexandra Líf var með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í lok árs og ætti því ekki að vera í neinum vandræðum að koma sér inn í hlutina. Ólíklegt er að Thea Imani Sturludóttir spili leikinn annað kvöld vegna meiðsla og þá verður Díana Dögg Magnúsdóttir fjarverandi vegna prófa. Díana nemur flugvélaverkfræði í Þýskalandi. Thea og Díana eru báðar örvhentar skyttur en í gær heltist einn örvhentur leikmaður til viðbótar úr lestinni þegar hornamaðurinn Þórey Anna Ásgeirsdóttir dró sig út úr hópnum. Hún er barnshafandi og í stað Þóreyjar Önnur var þá Sonja Lind Sigsteinsdóttir úr Haukum kölluð inn í landsliðshópinn.