Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi í Austurhlíð í Biskupstungum, var í dag sjálfkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands til 2028. Trausti hefur gegnt formennsku í samtökunum síðustu tvö ár. Bændasamtökin kjósa sér formann á tveggja ára fresti til tveggja ára í senn með rafrænni kosningu, en að þessu sinni var Trausti einn frambjóðenda og varð þá sjálfkjörinn þegar framboðsfrestur rann út á miðnætti. Hann er búfræðingur að mennt og sat í stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda, sem síðar varð deild sauðfjárbænda í Bændasamtökunum, árin 2017-2024. Þar var hann formaður árin 2022-2024. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands ásamt Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, og Margréti Ágústu Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna.Bændasamtök Íslands / Valur Þorsteinsson