Málverk eftir hollenska meistarann Rembrandt, sem ekkert hafði spurst til í áratugi, kom nýverið aftur í leitirnar. Uppruni verksins hefur verið staðfestur af sérfræðingum, enda ber það öll helstu einkenni listamannsins. Verkið heitir Sýn Sakaría í musterinu og sækir í sögu úr Biblíunni þar sem Gabríel erkiengill vitjar Sakaría spámanns og tilkynnir að honum og konu hans muni fæðast drengur, Jóhannes skírari. Í frétt BBC segir að Rembrandt hafi málað verkið árið 1633, það hafi hins vegar verið tekið af verkaskrá árið 1960 og horfið eftir að hafa verið selt einkasafnara ári síðar. Það kom svo aftur í ljós þegar eigendur þess sendu það til rannsóknar hjá Rijksmuseum í Amsterdam. Þar fór fram tveggja ára ítarleg rannsókn. Nú hafa sérfræðingar staðfest að þarna sé sannarlega verk eftir Rembrandt. Það er algengt að fólk setji sig í samband við safnið og óski eftir upplýsingum um verk sem þeim hafa áskotnast. Í þessu tilfelli vissu safnverðir strax að þeir væru með sérstakt verk í höndunum. „Við höfðum vitað af þessu verki í heila öld en aldrei séð það,“ sagði Taco Dibbits, safnstjóri. Sérfræðingar rannsökuðu litarefni og málaratækni og komust að því að allt samræmdist fyrri verkum Rembrandts. Undirskriftin reyndist upprunaleg og tréplatan sem málað var á er frá réttum tíma. Málverkið verður sett á sýningu á morgun. Erfitt er að geta til um verðmæti þess, en hæsta uppboðsverð fyrir verk eftir Rembrandt er um þrír og hálfur milljarður íslenskra króna.