Eitt mikilvægasta öryggistæki heimilisins

Eitt mikilvægasta öryggistæki heimilisins er bilunarstraumsrofinn (lekastraumsrofinn). Hann rýfur strauminn í raflögninni verði bilun í henni, t.d. í raftæki, og kemur þannig í veg fyrir slys og bruna.  Til að bilunarstraumsrofinn virki sem skyldi þarf að halda honum í æfingu, þ.e. liðka hann, hann getur nefnilega stífnað með tímanum. Bilunarstraumsrofa þarf að prófa með prófunarhnappi […]