Davíð Oddsson jarðsunginn 13. mars

Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins, fyrrverandi forsætisráðherra og borgarstjóri lést á heimili sínu sunnudaginn 1. mars síðastliðinn. Útför hans verður opinber samkvæmt verklagsreglum forsætisráðuneytisins. Forsætisráðuneytið sér um undirbúning útfararinnar en í samræmi við óskir fjölskyldunnar. Davíð Oddsson verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 13. mars nk. klukkan 13. Það er séra Geir Waage sem mun jarðsyngja Davíð en Geir er tengdafaðir Þorsteins sonar Davíðs. Forseti Alþingis minntist Davíðs Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis minntist Davíðs við upphaf þingfundar í gær. Þá sagði Þórunn meðal annars: „Með Davíð Oddssyni er genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma hér á landi. Enginn hefur gegnt embætti forsætisráðherra lengur á Íslandi en hann og það má vera til marks um bæði samverkafólk hans á vettvangi stjórnmálanna og ekki síður að kjósendur höfðu fulla trú á hinum einarða foringja sem hann sannarlega var. Davíð Oddsson var margslunginn maður hann var stjórnmálaforingi og rithöfundur maður orða en ekki síður athafna,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir við upphaf fundar á Alþingi í gær.