Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi deiliskipulag sem felur í sér byggingu 15 smáhýsa við ströndina í Garðinum í Suðurnesjabæ. Þessi úrskurður var kveðinn upp þann 27. febrúar síðastliðinn. Í niðurstöðuhluta hans segir: ,,Felld er úr gildi ákvörðun bæjarráðs Suðurnesjabæjar frá 25. júní 2025 um að samþykkja deiliskipulag Gauksstaða (L196408) fyrir ferðaþjónustu.“ Smáhýsin á að byggja í landi Gauksstaða en nokkrir nágrannar jarðarinnar eru ósáttir við framkvæmdirnar og vilja reyna að stöðva þær. Þess vegna kærðu þeir deiliskipulagsgerðina til úrskurðarnefndarnnar. Gísli Tryggvason er lögmaður hópsins og segir hann að deiliskipulagið um framkvæmdirnar sé fellt á því að það hafi ekki verið nægilega vel kynnt fyrir nágrönnum Gauksstaða. Hann segir að um sé að ræða fullnaðarsigur á stjórnsýslustigi. ,,Það er felld úr gildi þessi ákvörðun bæjarstjórnar. Þá þarf að gera nýtt deiliskipulag. Ég býst nú við að þeir hætti annað hvort við eða reyni aftur,“ segir Gísli. Fjallað var um deilurnar um smáhýsin í Garðinum í fréttaskýringaþættinum Þetta helst nú í febrúar. Þar sagði Freyr Gunnarsson, einn af nágrönnum Gauksstaða meðal annars um framkvæmdirnar. „Það á að byggja fimmtán 50 fermetra túristahús eða ferðamannahús. [...] Ef þú skoðar svæðið á korti þá er þetta flóðasvæði og samkvæmt skipulagsreglugerð má ekki byggja á flóðasvæði. Bærinn ætlar ekkert að bakka með það, þeir ætla bara að byggja þarna.“ Þáttinn má hlusta á hér: Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála telur að bygging smáhýsa í Garðinum hafi ekki verið nægilega vel kynnt. Eigandi verkefnisins segir niðurstöðuna einungis vera formlegs eðlis og að samþykkja þurfi deiliskipulagið upp á nýtt. Segir úrskurð tefja framkvæmdir en ekki stöðva Eigendur félagsins Lion ehf. sem á Gauksstaði eru þeir Jón Steinar Konráðsson og Lárus Guðmundsson. Þeir reka nú gistirými fyrir ferðamenn á Gauksstöðum en ætla sér að stækka starfsemina með nýjum byggingum. Í viðtali við Þetta helst í febrúar sagði Lárus Guðmundsson um framkvæmdirnar: „Það er bara búið að skilgreina í aðalskipulagi að það eigi að byggja á þessu svæði; að það eigi að byggja þessa starfsemi sem við erum að fara að byggja upp. [...] Við erum bara að fara að hefja framkvæmdir.“ Lárus Guðmundsson segir við fréttastofu að úrskurðurinn feli ekki í sér neina grundvallarbreytingu fyrir þá og þeir muni halda fyrirhugðuðum framkvæmdum til streitu. Hann segir að ákvörðun nefndarinnar muni einungis tefja framkvæmdirnar en ekki koma í veg fyrir þær. Í ítarlegra svari í skilaboðum segir Lárus orðrétt að auglýsa þurfi deiliskipulagstillöguna aftur áður en sveitarfélagið samþykkir hana: ,,Mat nefndarinnar er því að auglýsa skuli tillöguna aftur óbreytta eins og hún er og hefur verið staðfest af skipulagsstofnun.Þetta vissulega hægir aðeins á ferlinu hjá okkur en um leið eyðir allri óvissu hvað varðar lögmæti skipulagsins. Við höldum áfram þeirri undirbúniningsvinnu sem við höfum verið í varðandi uppbygginguna og hlökkum til þess að opna glæsilega ferðaþjónustu vorið 2027. “