Formanni stjórnar Viðreisnar í Reykjavík hefur verið vikið frá störfum. Hann hefur verið sakaður um fjárdrátt og er málið nú á borði lögreglu. Hann er sakaður um að hafa millifært fjórar til fimm milljónir króna úr sjóðum félagsins. Vísir greindi fyrst frá, en Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, staðfestir þetta jafnframt í samtali við fréttastofu RÚV. Að sögn Svanborgar komst upp um málið um helgina þegar farið var yfir ársreikning félagsins á síðasta ári. Þá uppgötvaðist misræmi í bókhaldi félagsins og þurfti í kjölfarið að fresta því að leggja reikninginn fram. Á formaðurinn, sem gengist hefur við brotunum, að hafa millifært fjórar til fimm milljónir króna á persónulega reikninga á tímabilinu 2024 til 2024. Svanborg segir viðkomandi þegar hafa endurgreitt stóran hluta fjárhæðarinnar og að hann hafi skuldbundið sig til að endurgreiða upphæðina að fullu. Svanborg segir að stjórn Viðreisnar í Reykjavík hafi tekið ákvörðun um að kæra málið til lögreglu. Það var gert í dag. Formaðurinn sem málið varðar er Natan Kolbeinsson. Fyrir tæpum áratug var hann dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt þegar hann starfaði sem formaður og gjaldkeri Landssambands æskulýðsfélaga. Kosið var til nýrrar stjórnar á aðalfundi Viðreisnar í Reykjavík á laugardag og hefur Ingunn Rós Kristjánsdóttir tekið við hlutverki formanns félagsins.