Lítið úrval af örvhentum leikmönnum?

Kvennalandslið Íslands í handbolta leikur gegn Svartfjallalandi á miðvikudag í undankeppni EM 2026. Liðið mun þurfa að tefla fram rétthentum leikmanni í hægri skyttustöðunni vegna fjarveru Díönu Daggar Magnúsdóttur og Birnu Berg Haraldsdóttur; Díana Dögg verður þó klár í seinni leikinn gegn Svartfellingum.