Lögfræðingurinn Einar Geir Þorsteinsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu Miðflokksdeildar Hafnarfjarðar. Þar segir að niðurstaða uppstillingarnefndar liggi fyrir og muni efstu sæti listans verða kynnt á næstu dögum. Í tilkynningunni segist Einar vilja leggja áherslu á grunnþjónustu, fjölskyldur, atvinnulíf og samgöngur í Hafnarfjarðabæ. Hann talar einnig fyrir því að endurmeta stefnu sem skapað hafi álag á innviði bæjarins og nefnir í því samhengi að þora verði að ræða áhrif umfangsmikillar móttöku hælisleitenda á húsnæðismarkaði, skóla og félagsþjónustu í bæjarfélaginu. Einar Geir leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði.Miðflokksdeild Hafnarfjarðar