„Við erum að tala um hana Skrítlu sem er að verða þriggja ára. Hún, eins og tíkur, fer á lóðarí sirka tvisvar á ári og þá snýst allt á hvolf,“ segir tónlistarmaðurinn Dr. Gunni, eða Gunnar Lárus Hjálmarsson eins og hann heitir réttu nafni. Síðasti aðfangadagur hjá honum var heldur viðburðaríkur þegar tilraunir til að róa tíkina skiluðu engu því henni tókst að lokka til sín Sexý Rú, border collie af næsta bæ, og nágrannahundinn Spora. Þetta óhefðbundna jólaævintýri bar ávöxt í vikunni sem leið þegar fimm hvolpar komu í heiminn. Morgunútvarpið ræddi við Gunnar sem sagði frá ævintýrinu. Lokkaði til sín fjósahundinn Sexý Rú „Þá er ekki annað í boði en að svala þessum ástarfýsnum hjá tíkunum. Þær senda út einhver lyktarmerki sem nást yfir margra kílómetra svæði. Ef það eru einhverjir tilkippilegir rakkar innan þessa radíuss þá er bara voðinn vís.“ Hafi maður ekki í huga að búa til hvolpa þá þurfi að passa tíkina afskaplega vel. Á aðfangadag var ekkert jólaveður heldur rigning og „tíkin alveg að fara yfir um.“ Þá ákvað kærasta Gunnars, Helena, að hleypa Skrítlu út í garð þar sem hún var fest við staur til að hún gæti róað sig aðeins niður. „Eftir nokkrar mínútur lítur hún út og þá er kominn fjósahundur á hana.“ Það var border collie-fjósahundurinn Sexý Rú af næsta bæ. „Hann er mjög stór og stæðilegur og mjög sexý því hann er með svipuð augu og Sexý Rú í mannheimum. Þegar hann birtist óvænt þá heldur maður oft að maður sé að sjá einhvern draug.“ „Hann er kominn á Skrítlu og Helena æpir og hleypur út, þarf að slíta þau í sundur og senda Sexý Rú í burtu með óbót af skömmum.“ Hann segist ekki vita hvort hvolparnir hafi komið undir þá eða ekki. „Þá er búið að pakka þessum pakka inn“ Seinna um kvöldið, klukkan hálf sex, kemur annar border collie-hundur af öðrum nálægum bæ til sögunnar. „Hann er mjög ætthreinn og merkilegur og góður hundur sem ber nafnið Spori. Hann er með ættbók og allt.“ „Hann er það merkilegur hundur að hann kann að opna hurðir,“ bætir Gunnar við. „Spori opnar útidyrahurðina og Skrítla hleypur út og þau hverfa út í aðfangadagsmyrkrið klukkan hálf sex. Svo kemur hún til baka tíu mínútur í sex og jólin geta komið.“ „Þá er þetta komið. Það er búið að pakka þessum pakka inn og síðan var hann tekinn upp á mánudaginn þegar fimm hvolpar komu.“ Ekki er hægt að segja til um hvor rakkinn sé faðirinn en Gunnar telur líklegt að báðir eigi þeir eitthvað í hvolpunum. Hann segist þó ekki vita hvort líffræðin bjóði upp á slíkt. „Skrítla stendur sig mjög vel í þessu móðurhlutverki, eins og hún stóð sig í hinu hlutverkinu, að verða móðir. Þetta er bara líffræðin í tærustu mynd.“ Tíkin Skrítla lokkaði til sín fjósahundana Sexý Rú og Spora á aðfangadag, fjölskyldunni til mikillar mæðu, og bar ævintýrið nýlega ávöxt. „Ef það eru einhverjir tilkippilegir rakkar innan þessa radíuss þá er bara voðinn vís,“ segir Dr. Gunni. Rætt var við Dr. Gunna í Morgunútvarpinu á Rás 2. Viðtalið má finna í spilaranum hér fyrir ofan.