Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótaði í dag að slíta viðskiptasambandi við Spán, eftir að vinstri stjórn landsins neitaði að leyfa bandarískum flugvélum að nota bækistöðvar sínar til að ráðast á Íran og mótmælti auknum framlögum til varnarmála innan NATO. „Spánn hefur verið hræðilegur,“ sagði Trump við fréttamenn þegar hann hitti Friedrich Merz, kanslara Þýskalands í Hvíta húsinu. „Við ætlum að...