Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra vonar að hægt verði að ná tökum á brotastarfsemi með viðurlögum og fjársektum. Eftirlit með brotastarfsemi á vinnumarkaði verður eflt með fjölbreyttum aðgerðum stjórnvalda . „Ég bind miklar vonir um það að vinnustaðaeftirlitið sem hefur verið grunnurinn að því að, hvað á ég að segja, ná utan um brotastarfsemi og þessi stóru mál sem komið hafa upp síðustu ár hafa einmitt veriði á vettvangi þess eftirlits sem að við erum að efla,“ segir Ragnar Þór. Einn hluti aðgerðanna sem verið er að vinna nánar er athugun á því hvort lögfesta viðurlög við brotum á lágmarkskjörum launafólks þannig að það hefði fjárhagslegar afleiðingar fyrir atvinnurekendur að hýrudraga launafólk. „Ég hef töluverðar væntingar til þess og ennþá meiri væntingar um að við náum loksins utan um brotastarfsemina með viðurlögum og fjársektum. Að við getum þá farið í að ná utan um þann hluta í eitt skipti fyrir öll.“ Á vegum formlegs samstarfseftirlits lögreglu, Skattsins og Vinnueftirlitsins sem hófst fyrir ári hefur verið farið á 350 vinnustaði til að athuga hugsanlega brotastarfsemi. Í aðgerðaáætluninni sem birt var í dag á að tryggja samstarf svokallaðra eftirlitsaðila það er lögreglu, Skattsins og Vinnueftirlitsins undir forystu þess síðastnefnda við aðila vinnumarkaðarins. Þessi samstarfsvettvangur ríkisstofnana var lögfestur með lagabreytingum sem tóku gildi í janúar í fyrra. „Á því ári sem liðið er höfum við lagt mikla áherslu á að fara í sameiginlegt vinnustaðaeftirlit og höfum nú þegar heimsótt 350 vinnustaði um allt land,“ segir Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir forstjóri Vinnueftirlitsins Vinnustaðirnir, sem heimsóttir voru, voru í mannvirkjagerð, verslun og þjónustu og hjá framleiðslufyrirtækjum. Ekki hafa allir vinnustaðir verið með sitt á hreinu: „Nei því miður. Við erum að sjá grun um brot. Þannig að við þurfum að skoða þessi mál betur.“ Verið er að fylgja þessum málum eftir, segir Hanna Sigríður. „Framtíðarsýnin er skýr að við viljum að hér ríki samkeppnishæft og heilbrigt atvinnulíf þar sem borin er virðing fyrir réttindum vinnandi fólks og að þær reglur sem gilda séu virtar.“ Á vegum formlegs samstarfseftirlits lögreglu, Skattsins og Vinnueftirlitsins sem hófst fyrir ári hefur verið farið á 350 vinnustaði til að athuga hugsanlega brotastarfsemi. Verkalýðshreyfingin tók þátt í að móta aðgerðirnar þrettán sem stjórnvöld kynntu í dag. „Þarna er verið að styrkja bæði samstarf opinberu stofnana en líka samstarf stofnana við verkalýðshreyfinguna og samtök atvinnurekenda,“ segir Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ. Tvær aðgerðanna skipta verkalýðshreyfinguna miklu máli segir Saga: „Annars vegar er það það að stjórnvöld ætla að kanna nauðsyn þess að lögfesta viðurlög gegn brotum á lágmarkskjörum launafólks. Og hin stóra aðgerðin, kannski svona vinnumarkaðsaðgerðin er þá að útvíkka og styrkja keðjuábyrgð. En svo langar mig líka að nefna að það stendur til að styrkja vernd þolenda. Þolendur mansals og annarra alvarlegra vinnumarkaðsbrota. Að þeirra vernd sé aukin þannig að fólk þori að segja frá og leita sér aðstoðar ef það er í slæmum aðstæðum.“