Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, telur að öllu hinsegin fólki sárni að heyra orð Jakobs Rollands, kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, um að hann álíti kynlíf samkynja einstaklinga syndugt. Þá telur hún, miðað við orð kanslarans, að svokallaðar bælingarmeðferðir séu stundaðar á vegum kirkjunnar þrátt fyrir að þær séu ekki sérlega skipulagðar.