Mygla á endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild SAk

Mygla hefur greinst á endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Deildin er hýst á Kristnesspítala í Eyjafirði. Ekki er gert ráð fyrir því að skerða þurfi þjónustu vegna myglunnar eins og er. Akureyri.net greindi fyrst frá. Samkvæmt heimildum akureyri.net hafði grunur vaknað um rakaskemmdir og starfsmenn sjúkrahússins fundið fyrir myglueinkennum. Niðurstöður úr sýnatöku sýndu vöxt myglusvepps í hluta þeirra sýna sem tekin voru í hluta húsnæðisins. Myglan greindist í rýmum starfsfólks þar á meðal í skrifstofum, fundarherbergjum og geymslum. Einnig fannst mygla í rýmum sem notuð voru til þess að þjónusta einstaklinga í skemmri tíma. Ekki er búist við því að skerða þurfi þjónustu vegna myglunnar en óskað hefur verið eftir frekari sýnatökum. Unnið er að greiningu á stöðunni og úrbótaáætlun.