Enginn á að vera einn í Reykja­vík

Einmanaleiki er ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans. Hann snertir fólk á öllum aldri, börn, ungmenni, fullorðna og eldra fólk. Í ört vaxandi borg þar sem byggð þéttist og samfélagsform breytast verðum við að spyrja: hvernig tryggjum við að engin manneskja upplifi sig eina?