„Kom aldrei til greina að velja hana ekki“

„Það kom aldrei til greina að velja hana ekki þó að hún gæti bara verið með í seinni leiknum gegn Svartfjallalandi,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvennaliðs Íslands spurður út í fjarveru Díönu Daggar Magnúsdóttur í fyrri leik liðanna í undankeppni EM 2026.