Aukinn flutningskostnaður vegna átaka komi sér sérstaklega illa fyrir Ísland

Snorri Jakobsson, hagfræðingur hjá Jakobsson Capital, segir að átökin í Miðausturlöndum hafi þegar haft mikil áhrif á olíuverð, miklar sveiflur séu á verðinu og að flutningsverð hafi hækkað sömuleiðis. Hann segir ekki ljóst hver langtímaáhrifin verði, að allt fari það eftir hve lengi átökin standi yfir. „Vonandi er þetta ástand sem varir í um tvær til þrjár vikur en ef þetta er eitthvað til langs tíma að þá er kannski komið tilefni til þess að hafa smá áhyggjur af því, sérstaklega olíuverðinu og flutningskostnaði.“ Að sögn Snorra kæmi hækkun flutningsverðs sér sérstaklega illa fyrir Ísland þar sem vægi flutningsverðs vöru sé almennt meira hérlendis. Áhrifanna gæti víðar, til að mynda í ferðaþjónustu. „Þetta mynstur, ferðamenn koma til Íslands og hækka svo verð á útflutning frá Íslandi.“