Viðskiptaráðherrann svarar spurningum nefndar um tengsl við Epstein

Bandaríski viðskiptaráðherrann Howard Lutnick hefur fallist á að svara spurningum eftirlits- og stjórnskipunarnefndar Bandaríkjaþings, sem rannsakar glæpi kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein. Howard Lutnick er viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump.EPA / WILL OLIVER / POOL Lutnick heimsótti eyju Epsteins í Karíbahafi nokkrum sinnum, nokkrum árum eftir að ráðherrann kveðst hafa slitið á öll tengsl við hann, samkvæmt vísbendingum í þeim milljónum skjala sem dómsmálaráðuneytið birti í janúar. Nefndarformaðurinn James Comer greindi frá þessu í færslu á X þar sem hann fagnar ákvörðun ráðherrans. Ekki kemur fram hvenær Lutnick flytur vitnisburð sinn.