Sérfræðingaráð Írans hefur kjörið Mojtaba Khamenei nýjan æðstaklerk, andlegan leiðtoga Írans, undir miklum þrýstingi frá byltingarverðinum, samkvæmt fréttum útlagafréttastöðvarinnar Iran International. Hún hefur aðsetur í Lundúnum og greinir frá þessu á samfélagsmiðlinum X. Nýi æðstiklerkurinn er næstelsti sonur Ali Khameneis, leiðtogans sem drepinn var í loftárásum Ísraela og Bandaríkjamanna 28. febrúar. Mojtaba Khamenei er hálfsextugur sjítaklerkur og hefur aldrei gegnt opinberu embætti en er sagður hafa mikil ítök að tjaldabaki vegna sterkra tengsla við byltingarvörðinn. Margir stjórnmálagreinendur hafa nefnt Mojtaba sem mögulegan arftaka föður síns. Sérfræðingaráðið hefur það verkefni að skipa æðsta leiðtogann, fylgjast með störfum hans og víkja honum frá ef svo ber undir. Fjörutíu daga þjóðarsorg var lýst yfir í Íran eftir dráp Ali Khameneis, sem hafði verið æðst ráðandi síðan 1989.