Þriðja aftakan í Flórída það sem af er ári

Varðturn við bandarískt fangelsi. Mynd úr safni.EPA Rúmlega fimmtugur bandarískur karlmaður var tekinn af lífi í Flórída í kvöld, en hann var dæmdur til dauða árið 1991 fyrir að hafa myrt lögreglumann með skammbyssu hans. Eitursprauta var notuð við líflátið, sem var það þriðja í Flórída á þessu ári.