Engan sakaði í miklum eldsvoða í Grafarholti

Engan sakaði þegar allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan fjögur í nótt vegna eldsvoða á neðstu hæð fjölbýlishúss í Grafarholti. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir íbúðina hafa verið alelda en að vel hafi gengið að slökkva eldinn. Hann segir húsráðendur hafa komist út af sjálfsdáðum en íbúðin sé mikið skemmd af völdum elds og reyks. Frágangi lauk laust fyrir klukkan fimm og þá tók lögregla við rannsókn á upptökum eldsins.