Fyrrverandi sendiherra segir engan skýran rökstuðning fyrir árásum á Íran

Bandaríkjastjórn hefur ekki gefið skýran rökstuðning fyrir ástæðum þess að ráðist var á Íran, að mati Samönthu Power, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Power sagði í viðtali við BBC að hefðu stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael fengið einhverjar vísbendingar um yfirvofandi ógn hefðu þau hrópað þær af húsþökum. Power segir engin sönnunargögn að finna um hótanir af hálfu Írana, hvorki innan viðeigandi nefnda í Washington né opinberlega. Fyrir skemmstu hefðu Bandaríkin og Ísrael lýst sigri og ítrekað að kjarnorkuinnviðum Írans hafi verið tortímt í tólf daga stríðinu síðasta sumar. Power segir stjórnvöld hafa borið margvíslegar ástæður fyrir árásunum á borð fyrir almenning og að því verði haldið áfram. Ekkert bendi til að þær byggi á staðreyndum. Power segir jafnframt engan vita hvenær fjöldi Bandaríkjamanna farist í árás en rifjar einnig upp að fjöldi íranskra skólastúlkna lét lífið í atlögu Bandaríkjahers. Hingað til hafi fáeinir bandarískir hermenn týnt lífi en Power segir áhyggjuefni hve bandarísk stjórnvöld leggi lítinn þunga í dauða þeirra, ríkisborgara Írans og annarra ríkja. Hún hafi aldrei á ævi sinni heyrt yfirvöld tala af slíkri léttúð og kulda um voveiflegan dauða fólks.