Starfshópi ætlað að skila tillögum um sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk í marslok

Til stendur að starfshópur um sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk skili félags- og húsnæðismálaráðherra tillögum fyrir lok mars og muni nýta niðurstöður hópavinnu á árlegu samráðsþingi um málefni fatlaðs fólks sem haldið var í gær, fjórða sinni. Á vef Stjórnarráðsins segir að hóparnir hafi leitað svara við hvernig mæta megi margvíslegum þjónustuþörfum fólks með sveigjanlegri og fjölbreyttari hætti og hvað þurfi að breytast á næstu tíu árum svo húsnæðisúrræði verði sjálfbær, sanngjörn og sveigjanleg. Samráðsþingið tengist landsáætlun stjórnvalda um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og er skipað fulltrúum þess, ríkis- og sveitarfélaga og háskólasamfélagsins. Yfirskrift þingsins var „Húsnæði við hæfi: Heimili sem styður sjálfstætt líf“. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði í opnunarávarpi umræðuna snúast um þann grundvallarrétt fólks að eiga heimili og lifa sjálfstæðu lífi á eigin forsendum. „Oft er svarið við þessum spurningum ekki byggt á raunverulegu vali fólks heldur á því framboði sem er á húsnæði og þjónustu hverju sinni. Verkefnið hér í dag er að skoða hvernig hægt er að breyta þessu,“ sagði Ragnar Þór.