Rúmur milljarður í starfslokasamninga hjá ráðuneytum

Kostnaður ráðuneyta og undirstofnana við starfslokasamninga er misjafn. Ráðuneytin hafa nú öll svarað fyrirspurn Karls Gauta Hjaltasonar, þingmanns Miðflokksins, um kostnaðinn. Dómsmálaráðuneytið hefur greitt mest allra ráðuneyta í starfslokasamninga, tæpar 400 milljónir, á tímabilinu 2018-2025. Heildarkostnaður heilbrigðisráðuneytisins er rúmar 200 milljónir. Á sama tímabili var gerður einn starfslokasamningur á vegum utanríkisráðuneytisins. Kostnaður þess samnings er 8,7 milljónir. Heildarkostnaður starfslokasamninga allra ráðuneyta er rúmur 1,1 milljarður. Hvaða reglur gilda um starfslokasamninga við starfsmenn ríkisstofnana? Forstöðumanni ríkisstofnunar er heimilt að semja um starfslok við einstaka starfsmenn er þeir ráða og embættismenn er þeir skipa. Jafnframt er ráðherrum og stjórnum, þar sem það á við, heimilt að semja um starfslok. Starfslokasamningar ríkisins skulu byggja á málefnalegum sjónarmiðum. Með starfslokasamningi er átt við samkomulag milli aðila um að starfsmaður láti af starfi eða embætti hjá ríkisstofnun, áður en hann hefur náð aldurshámarki eða tímabundin skipun eða ráðning er á enda, og þá eftir atvikum gegn fjárgreiðslu. Nánar má lesa um reglurnar hér. Misjafnt er milli ráðuneyta hve kostnaðurinn er mikill Tveir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan dómsmálaráðuneytisins og 27 hjá undirstofnunum þess yfir sama tímabil. Kostnaðurinn við þessa samninga nemur rétt tæpum 400 milljónum. Þar af hefur kostnaður upp á 356 milljónir fallið til á síðustu fimm árum. Meðalkostnaður við hvern samning nemur á fjórtándu milljón. Á árunum 2018-2025 gerðu 13 undirstofnanir heilbrigðisráðuneytisins alls 24 starfslokasamninga. Heildarkostnaður ráðuneytisins vegna samninganna er rúmar 233 milljónir. Til samanburðar voru gerðir þrír starfslokasamningar hjá forsætisráðuneytinu yfir sama tímabil og einn hjá utanríkisráðuneytinu. Kostnaður forsætisráðuneytisins við samningana er 10 milljónir og 8,7 milljónir hjá utanríkisráðuneytinu. Undirstofnanir ráðuneyta með mestan fjölda samninga Hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu gerðu undirstofnanir 24 starfslokasamninga fyrir 174,5 milljónir. Atvinnuvegaráðuneytið tók mið af gögnum frá 1. febrúar 2022. Frá þeim tíma hafa verið gerðir 17 starfslokasamningar hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess. Heildarkostnaður er rúmar 95 milljónir. Engir starfslokasamningar hafa verið gerðir hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu en 22 samningar voru gerðir hjá undirstofnunum ráðuneytisins. Heildarkostnaður er um 60 milljónir. Innviðaráðuneytið hefur gert einn starfslokasamning og undirstofnanir ráðuneytisins gerðu 11. Heildarkostnaður er rúmar 48 milljónir. Undirstofnanir fjármála- og efnahagsráðuneytisins gerðu 14 starfslokasamninga fyrir tæpar 39 milljónir. Á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og stofnana þess hafa verið gerðir sjö starfslokasamningar. Heildarkostnaður er rúmar 32 milljónir. Barnamálaráðuneytið gerði tvo starfslokasamninga og undirstofnanir þess gerðu níu. Heildarkostnaður nemur um 26,7 milljónum. Heildarkostnaðurinn nemur um 1,1 milljarði á þessum árum.