Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tekur á móti Svartfellingum í undankeppni EM í handbolta á Ásvöllum kl. 18 í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV 2 og upphitun í Stofunni hefst klukkan 17:30 Undankeppnin hófst í október og lýkur í apríl. Leikið er í sex fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils tryggja sig á mótið auk fjögurra liða með besta árangur í þriðja sæti. Mótið verður haldið í desember í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi. Ísland tapaði báðum leikjunum í fyrsta glugganum í október; með tveimur mörkum fyrir Færeyjum og einu marki fyrir Portúgal. Staðan í riðlinum fyrir leiki dagsins er svona en viðureign Færeyja og Portúgal hefst kl. 19. Svartfjallaland 4 Færeyjar 2 Portúgal 2 Ísland 0 Breytingar hafa orðið á leikmannahópi Íslands síðustu daga. Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín datt út vegna meiðsla og Þórey Anna Ásgeirsdóttir er ólétt. Þá er ólíklegt að Thea Imani Sturludóttir spili vegna meiðsla og Díana Dögg Magnúsdóttir er fjarverandi vegna náms í flugvélaverkfræði. Viðureign Íslands og Svartfjallalands hefst klukkan 18:00 í beinni útsendingu á RÚV 2 og hitað verður upp í Stofunni frá 17:30.