Víða flughált á vegum

Flughált er á vegum víða um land og getur það reynst fólki hættulegt á ferðum sínum. Flutningabíll fór út af hringveginum við Þelamerkurskóla í nótt. Unnið hefur verið að því að koma honum upp á veginn í morgun og var hann enn lokaður klukkan sjö. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er flughált á Öxnadalsheiði, í Vatnsskarði og Hörgárdal. Snjóþekja er í Hrútafirði en hálka eða hálkublettir annars staðar. Fróðárheiði er ófær og sömu sögu er að segja af Kleifaheiði. Dynjandisheiði er lokuð og krapi í Ísafjarðardjúpi. Ófært er á Hófaskarði og unnið að mokstri. Flughált er á nokkrum köflum á Norðausturlandi, svo sem í Köldukinn, á Fljótsdalsheiði og Langadal í Möðrudalsöræfum. Krapi er á Fagradal og ófært á nokkrum leiðum, svo sem um Öxi og Breiðdalsheiði.