Útlit fyrir dimm él sunnan- og vestanlands

Veðurstofan hefur ekki farið í litabox sitt við útgáfu veðurviðvarana í dag en bendir þó á að búast megi við dimmum éljum sunnan- og vestanlands síðdegis. Hvasst verður vestast á landinu um tíma eftir hádegi í dag en þess utan verður víðast kaldi eða stinningskaldi, fimm til þrettán metrar á sekúndu. Veðurspáin er svohljóðandi: Sunnan og suðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu, en þrettán til átján vestast um tíma eftir hádegi í dag. Él sunnan- og vestantil, en annars bjartviðri. Suðlæg eða breytileg átt, þrír til átta metrar á sekúndu, á morgun og áfram él, en yfirleitt léttskýjað norðan- og austanlands. Hiti í kringum frostmark.