Sameiningarkirkjan, sem var stofnuð af Sun Myung Moon í Suður-Kóreu 1954 og hefur oft verið kennd við hann, hefur verið bönnuð í Japan. Áfrýjunardómstóll í Tókýó staðfesti í dag dóm af lægra dómstigi um að leysa trúfélagið upp. Sameiningarkirkjan hefur lengi sætt gagnrýni fyrir að ganga mjög hart fram gegn sóknarbörnum sínum í að krefjast fjárframlaga. Þetta hefur gengið svo langt að fólk hefur stefnt sér í miklar skuldir og orðið gjaldþrota, samkvæmt rannsóknum fjölmiðla og yfirvalda. Að auki hefur Sameiningarkirkjunni verið kennt um vanrækslu barna af hálfu sóknarbarna sinna. Trúfélagið hefur lengi vakið athygli víða um heim. Það var oft kallað Mooníarnir eftir stofnandanum. Sameiningarkirkjan komst einnig í fréttirnar þegar Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra, var myrtur á framboðsfundi. Morðingi hans sagðist hafa ráðið hann af dögum vegna tengsla forsætisráðherrans fyrrverandi við Sameiningarkirkjuna. Móðir morðingjans hafði látið svo mikið fé af hendi rakna til trúfélagsins að fjölskyldan varð gjaldþrota. Stjórnvöld hófu vinnu við að leysa trúfélagið upp 2023 og hafa tvennir dómstólar orðið við þeirri kröfu.