Al­þjóða­dagur offitunnar

Alþjóðadagur offitunnar er 4. mars ár hvert. Gott er að staldra við í tilefni dagsins og skoða hvar við erum stödd. Upplýsingar um slæma stöðu okkar meðal annarra norðurlandaþjóða vöktu verðskuldaða athygli í lok síðasta árs þar sem fram kom að um 70% fullorðinna einstaklinga mælast í ofþyngd og 28% í offitu samkvæmt líkamsþyngdarstuðli.