Baráttan um Englandsmeistaratitilinn nær brátt hámarki. Þegar aðeins tíu umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni berjast Arsenal og Manchester City um titilinn. Skytturnar hafa verið á toppi ensku úrvalsdeildarinnar nær allt tímabilið og eru í leit að sínum fyrsta Englandsmeistaratitli í rúmlega tuttugu ár á meðan City-menn freista þess að verða meistarar í sjöunda sinn á síðustu tíu árum.