Verður að fara inn í nýjan ára­tug með stæl

„Þetta leggst furðuvel í mig. Ég var búin að vera smá stressuð að ganga inn í þennan nýja áratug en nú þegar það er komið að honum þá er ég bara spennt fyrir komandi tímum,“ segir hlaðvarpsstýran Birta Líf sem fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu um helgina með pompi og prakt. Blaðamaður ræddi við hana um tímamótin og gleðina.