Landssamráðsfundur um aðgerðir til að draga úr ofbeldi

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri bjóða til landssamráðsfundar um aðgerðir til að draga úr og koma í veg fyrir ofbeldi á Íslandi. Markmið fundarins er að efla samráð og þverfaglegt samstarf gegn ofbeldi á Íslandi, með sérstaka áherslu á að draga úr ítrekuðu ofbeldi. Fundurinn er ætlaður fulltrúum ríkis, sveitarfélaga, frjálsra félagasamtaka, rannsóknastofnana og öðrum sem láta sig þessi mál varða. Hægt er að fylgjast með streymi frá fundinum í spilaranum hér að neðan. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri bjóða til landssamráðsfundar um aðgerðir til að draga úr og koma í veg fyrir ofbeldi á Íslandi. Hægt er að fylgjast með streymi af fundinum. Dagskrá fundarins 9:00-9:10 - Setning fundar, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra 9:10-9:35 - „Líkamsmeiðingar, kynferðisofbeldi og manndráp: Hvernig eru ofbeldisbrot á Íslandi?“ Rannveig Þórisdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs ríkislögreglustjóra 9:40-9:55 - „Áföll og ofbeldi - og mögulegar afleiðingar.” Sólveig Fríða Kjærnested, sérfræðingur í klínískri sálfræði á geðsviði Landspítalans Viðmælandi: Þráinn Farestveit, framkvæmdastjóri Verndar fangahjálpar og varaformaður SÁÁ 09:55-10:10 - „Að brjóta ofbeldishringinn - meðferð foreldra sem beita ofbeldi.“ Paola Cardenas, teymisstjóri CPC-CBT, sálfræðingur og sérhæfður rannsakandi, Barnahús 10:10-10:30 - Kaffihlé (20 m) 10:35-11:00 - Pallborð: „Leiðin út - frá inngripi til endurhæfingar til að draga úr ítrekuðu ofbeldi.“ Eygló Harðardóttir stýrir umræðu: Agnar Bragason, forstöðumaður Batahúss karla Sr. Hjalti Jón Sverrisson, fangaprestur Þjóðkirkjunnar Guðmundur Ingi Þóroddsson, forstöðumaður Afstöðu Matthías Matthíasson, geðheilsuteymi fanga Karen Dröfn Hafþórsdóttir, sviðsstjóri meðferðarsviðs Fangelsismálastofnun Sædís Jana Jónsdóttir, sérfræðingur hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu Þóra Kemp, skrifstofustjóri ráðgjafar hjá Kópavogsbæ 11:00-11:15 - „Nálgunarbann, brottvísun og ákvörðun um ákæru - verndarúrræði og framkvæmd í reynd”. Kristmundur Stefán Einarsson, lögreglustjórinn á Austurlandi 11:15- 11:30 - „Hvað er réttlæti í huga þolenda kynferðisbrota? “. Dr. Hildur Fjóla Antonsdóttir, lektor við lögreglufræði Háskólans á Akureyri Viðmælandi: Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar 11:30-11:40 - „Taktu skrefið - hefur þú áhyggjur af kynferðislegri hegðun þinni?“ Anna Kristín Newton, sálfræðingur hjá Taktu skrefið 11:40-12:05 – Pallborð: „Hvaða breyttu birtingarmyndir ofbeldis eru þið að sjá á ykkar vettvangi?“ Magga Dóra Ragnarsdóttir stýrir umræðu: Gunnlaug Thorlacius, yfirfélagsráðgjafi Landspítala Jónas Hallgrímur Ottósson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Vesturlandi Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf Magnús Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís/Fjölmiðlanefnd Svala Jóhannesdóttir, stofnandi Matthildar, samtök um skaðaminnkun Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka Vinnustofur og hádegishlé 14:45–15:05 – Kynning vinnustofa: Niðurstöður og tillögur Fundarstjóri frá hverri vinnustofu kynnir helstu punkta frá umræðum 15:05 –15:35 - Pallborð: „Hvernig lítur framtíðin út í baráttunni gegn ofbeldi og afleiðingum þess? Hvaða skref viljum við taka í þeim efnum?“ Dr. María Rún Bjarnadóttir stýrir umræðu. Grímur Grímsson, þingmaður og formaður starfshóps um mótun nýrrar löggæsluáætlunar Margrét María Sigurðardóttir, forstöðumaður Mannréttindastofnunar Íslands, Salvör Nordal, umboðsmaður barna Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar Sigurður Örn Hilmarsson, varaþingmaður í allsherjar- og menntamálanefnd Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður og formaður velferðarnefndar 15:35–15.50 - Samantekt og fundi slitið: Grímur Hergeirsson ríkislögreglustjóri