Lækkun í hlutfalli barna sem ná lágmarksviðmiði

Niðurstöður nýrra stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði munu verða birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt reglugerð sem mennta- og barnamálaráðherra hefur nú gefið út. Jafnframt hafa niðurstöður lesfimi grunnskólabarna undanfarin fimm ár nú verið birtar í fyrsta sinn og eru þær birtar eftir sveitarfélögum.