Mikill meirihluti þeirra hermanna sem fellur í stríðinu í Úkraínu verður drónum að bráð enda fer 80 prósent stríðsrekstrarins fram með drónum. Þótt nokkrar þjóðir hafi byrjað að beita drónum til árása fyrir aldarfjórðungi verður stríðsins í Úkraínu minnst sem fyrsta drónastríðs sögunnar þar sem báðir stríðsaðilar beita þessu vopni og þar er þróunin hröð. Jón Björgvinsson fréttaritari fékk innsýn í starfsemi sem hófst í bílskúr í upphafi rússnesku innrásarinnar fyrir fjórum árum og telur nú hundruði starfsmanna sem framleiða tæplega 100 þúsund dróna á mánuði í leynilegri verksmiðju. Úkraínumenn hafa þar með náð því markmiði sínu að vera sjálfum sér nógir í drónasmíðinni með framleiðslu yfir milljón stríðsdróna á ári, flesta einnota, til árása, varna og njósna.