Djúpt hrygg yfir orðræðu kaþólsku kirkjunnar

„Ég biðla til kirkjunnar minnar að stíga skref til baka,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra í færslu á Facebook. Í útvarpsviðtali fyrr í vikunni sagði kanslari kaþólsku kirkjunnar frá því að kirkjan aðstoði fólk við að bæla niður samkynhneigð. Þorgerður Katrín er kaþólsk, hún segist í fæslunni hrygg yfir orðræðunni sem berist frá kirkjunni hennar. „Að tala um samkynhneigð sem vandamál sem þurfi að „laga” eða „breyta” er ekki aðeins meiðandi - það er hættulegt. Þetta get ég ekki túlkað öðruvísi en hvatningu til bælingar og slíkar meðferðir hafa valdið ómældum skaða.“ Þorgerður vísar í færslu sinni í lög sem Alþingi samþykkti árið 2023 um bann við bælingarmeðferðum. „Enda eru þær ein grófasta birtingarmynd fordóma gegn hinsegin fólki. Og brjóta gegn grundvallarhugmyndum okkar um frelsi og mannréttindi.“ „Ég hafna alfarið þeirri túlkun að það sé stefna Jesú Krists að samkynhneigðir eigi að breyta því hver þau eru,“ skrifar Þorgerður Katrín.